Posted at 08:40 pm by hebamaren
Permalink
Jæja ég vona að þið hafið flest öll horft á þáttinn síðasta sunnudag. Ef ekki, þá var hann um stelpu með mjög mikla anorexíu og Bulemíu... anorexia og bilemía er mjög alvarlegur geðsjúkdómur sem erfitt er að glíma við. Flestir þeir sem þekkja mig, vita að ég hef verið að glíma við þennan sjúkdóm í mörg ár og er enn.. Enda segji ég að maður læknast aldrei af honum heldur lærir að lifa með honum og halda einkennum niðri. En auðvitað koma slæmir dagar..
ÞAð sem mér fannst vanta í þessum þætti er að segja frá þörfinni á úrræði.. já það er svo rosalega lítil úrræði fyrir einstaklinga sem eru með þessa veiki.. Ég hef sjálf kynnst því.. gafst upp á að tala við endalaust af nýjum og nýjum næringarfæðingum og sálfræðingum sem voru að segja með hvernig ætti að gera hitt og þetta oog oftast voru þetta konur sem hafa aldrei þurft að glíma við aukakíló eða vissu ekki hvernig þessi tilfininng er... EN sem betur fer kynntist ég yndislegu fólki sem hjálpaði mér mikið, og svo nottla bara þroskaðist maður og lærði að taka á þessu...
En mig langar að segja eina sögu..
ÉG fékk eina hringingu um daginn frá einni stelpu. Hún var búin að frétta það að ég hefði verið með anorexíu og bulemíu þannig hún ákvað að hringja í mig og tala við mig.. Ég bíð henni í heimsókn... við förum að tala saman og í ljós kemur að hún er búllandi veik og þarf mikla aðstoð og var að leita til mín, til að spjalla.. Við töluðum lengi saman.. hún er það veik að það líður iðulega yfir hana, borðar akkurat EKKI neitt og hefur 3 lent inn á spítala...´Eftir að hún lenti inn á spítala fékk hún að tala við félagsfræðing en hana finnst það ekkert virka... ég sagði henni að hringja í stelpurnar í FORMA enda klassa stelpur þar á ferð...hún þorfði því ekki þannig ég bauðst til þess að hringja og ath með þær..Við kvöddumst þetta kvöld og ég bað hana að reyna að borða allavegna hálfan til 1 banana..bara til að fá EITTHVAÐ í kroppinn..hún sagðist ætla að REYNA....
Næsta dag hringi ég í stelpurnar í FORMA til að ath hvað stelpan geti gert og hvaða úrræði séu fyrir hendi.. þá kemur í ljós að þær eru EKKI starfandi... ég spurði bara hvað í ósköpunum væri þá hægt að gera??..þetta væri fárveik stelpa sem að þyrfti aðstoð strax.. grípa gæsina á meðan að hún væri viljug að fá aðstoð.. en neibb.. þá eru þær hættar... ein farin til útlanda og hin lenti í alvarlegu bílslysi og þá er bara starfsemin niðri.. stelpan sem ég talaði við í FORMA var mjög skilningsrík og vildi endilega vera í sambandi.. en ég spurði bara hvað í ósköpunum gæti stelpan gæti gert, 3-5 mánaða bið inn á spítala til að fá aðstoð og á hún þá bara að vonast til að halda lífi þangað til..vonast til að fá ekki hjartastopp.. eða vonast til að hún missi ekki meðvitund og vakni ekki aftur... eða eða eða... bíða bíða bíða... já svona er þetta gott fólk..ekkert hægt að gera nema að bíða bíða bíða..... ég er enn að bíða bíða, bíða... en því ver og miður gafst stelpan upp og hætti við að vilja fá aðstoð..henni fannst þetta of erfitt... of erfitt að bíða eftir að stoð..bíða eftir að fólk reyndi að troða í henni mat og hún yðri feit (hennar orð)... mér finnst þetta svo sárt... en ég fylgist með hennni..tala annarslagið við hana....
Já gott fólk... svona er þetta.. þeir veiku geta ekki alltaf fengið aðstoð þegar þeir treysta sér til... þeir þurfa að bíða í 3-5 mán bara til að fá VIÐTAL á spítala.. hvur ansk segji ég bara....

Hér er ein góð mynd sem lísir þessum sjúkdómi svo VEL !!!!!